16. nóv. 2007

Taktu lyfin þín!

Ég þarf að taka inn lyf á hverjum degi, ef ekki er ég orkulaus og grennist. Ótrúlegt en satt þá tókst mér að gleyma því og skyldi ekkert í því hvers vegna ég þurfti alltaf að vera að leggja mig. Þá var einhver sem vísaði mér á þennan vef og ég hef ekki gleymt að taka inn lyfin mín í langan tíma.

Þið sem eigið í sömu vandræðum þá mæli ég með þessum pilluáminningavef.

Smá spurning/brandari hér í lokin: Af hverju er ljóskan á pillunni?

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

af hverju?

hryssa

Nikita sagði...

til að fylgjast með hvaða dagur er!