14. nóv. 2007

Klára 2007, útskrift 2008!

Ég sótti um í Kennaraháskóla Íslands í desemeber fyrir ári síðan. Þeir voru að bjóða fólki að klára kennsluréttindanám á einu ári. Ég klára því námið núna í desember.
Þetta er eitthvað nýtt hjá þeim. Hefur gengið upp en mikil óánægja hefur verið í hópnum. Svo bætast þessi skilaboð:
„Því miður var ekki hægt að hafa sérstaka brautskráningu fyrir þá nemendur sem ljúka kennsluréttindanáminu um áramót.“

Mig sem langaði í útskrift, þegar ég væri búin með námið mitt. Ekki á ég von á því að mæta 14.júní 2008 og fagna þá.
Ég þarf ekki lengur að safna mér fyrir dressinu!

Fúli skóli.

Engin ummæli: