11. ágú. 2007

Sálfræði

Á að vera læra fyrir sálfræðipróf... elska Dr. Phil, vildi að ég gæti bara horft á hann og mætt í prófið! Vildi líka að ég væri niðrí bæ á gaypride og það vildi dóttir mín líka. En við erum hetjur, ég að læra og hún á skautanámskeiðinu og við vitum að það verður önnur gaypride á næsta ári.
Svo er fínt að setja inn svona vinabloggavæl. Ein vinkonan hringdi í mig í gær sem ég hef auðvitað alltaf verið á leiðinni að hringja í en aldrei gert, en þar sem að hún les víst bloggið mitt reglulega var hún ekkert að stressa sig, vissi ýmislegt sem ég var að gera svo hún þurfti ekkert að hringja... ég ætti kannski að hætta að blogga?

1 ummæli:

La profesora sagði...

blessuð vertu ekki að hætta að blogga, það yrði svo djöfulli dýrt fyrir mig að hringja...