Yndisleg helgi. Ólafsvík, Snæfellsjökull á sleða, yndislegt brúðkaup, hótelherbergi, sólbað, Hvalfjörður, Eilífsdalur og svo sjóferð.
Nánari lýsing á helginni kemur mjög fljótlega, er svo þreytt að ég get varla unnið!
23. jún. 2008
18. jún. 2008
Loksins smá ró
Er búin að vera á fullu síðan mín yndislegu börn fóru til pabba síns. En ég er rosa ánægð með mig, alveg að springa úr stolti. Ég útskrifaðist á laugardaginn úr KHÍ, mun endurtaka slíka hátið að fjórum árum liðnum en ég var að fá staðfestingu á inngöngu í Háskólann. Ma og pa buðu okkur í hádegismat eftir the handshake og svo var brunað á Völlinn og dottið í það. En þríeykið var að flytja inn í nýja íbúð og ég ákvað að gefa þeim einn lítinn og sætan gullfisk, hann Pétur en greyið lifði ekki nótina af. Þeir voru miður sín og segjast ætla að ná í nýjan Pétur...
En svo auðvitað aðalmálið en ég dansaði magadans á Ingólfstorginu í gær ásamt samnemendum. Tókst bara mjög vel þrátt fyrir rok og breytingu á síðustu stundu.
Er því búin að vera síðustu daga að æfa á fullu og vesenast í búningnum sem Josy lánaði mér og vill auðvitað selja mér. Ekki búin að taka ákvörðun með það.
Ég segi bara takk elsku tengdó fyrir saumaskapinn, takk Eva fyrir fyllinguna, takk Guðrún og Monika fyrir stuðningin og auðvitað takk ástin mín fyrir þolinmæðina. Held hann vilji gjarna sjá nýjan dans núna.
Á dagskránni: Heimsókn til Sólveiga og Snædísar, brúðkaup uppá jökli, heimatiltekt, Sigló og afslöppun!
Adios

4. jún. 2008
Jibbý
Strákarnir hérna í vinnunni voru að mæla sig... hæðina og vildu endilega fá að vita hvað ég væri lítil. En mér til mikilla ánægju er ég komin í 1.60 :) síðast var ég bara 1.58 svo ég er rosa glöð, er s.s. ekki hætt að stækka! Þeir voru mjög hissa á því hversu ánægð ég var og gátu því ekkert gert grín af hæðinni minni.
Adios.
Adios.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)