8. sep. 2008

Góður dagur

Allt að komast á hreint með skólann. Ég verð í fjórum námskeiðum og mjög skemmtilegum, meira að segja einu hjá Mr. Steik, en eftir að ég heilsaði honum þarna um daginn hringdi hann í mig, bæði heim og í gemsann en ég var ekki heima og síminn á silent og ég tók eftir því seint og síðar að hann hafði verið að reyna ná í mig. Hitti hann svo í dag og hann var að biðja mig að skrá sig í námskeið hjá sér, vantaði nemanda. Ég sló til :)

Svo sótti ég strætókortið mitt og ætla að prófa að hætta að vera skvísa á bíl... svo er reyndar kærastinn líka búin að sækja um rútukort fyrir elskuna sína svo ég ætti að verða rík á næstunni. Annars er ég líka komin með 3kr. stúdentaafslátt á Atlantsolíulykillinn minn... hmmmm er hrædd um að verða duglegri við að nýta hann frekar en hina kostina.

Svo á dagurinn eftir að verða miklu betri því ég fæ koss frá fallegasta manni í heimi!

Tútelú

2 ummæli:

Sívar sagði...

Kosinn var góður.. mmmm....

Becka sagði...

Gaman að heyra að allt gengur vel. Við skellum okkur á kaffihús saman þegar ég kem heim næst. Kveðjur frá Ítalíu. Begga