Kennaraháskóli Íslands, grunnskólakennari, tek það á tveimur árum í stað þrem og svo bara halda áfram og láta gamlan draum rætast, Náms- og starfsráðgjöf í Háskóla Íslands!
Er því byrjuð að spara, spara bensín og labba í vinnuna, nota drossíuna mína heittelskuðu bara á þriðjudögum og fimmtudögum því þá fer ég í magadansinn sem ég hef fundið að ég get ekki verið án og á ekki von á því að hætta, líður of vel í honum. Minnka frekar nammiát, video og bíó ferðir. Ég á líka svo góðan kærasta sem býður mér í bíó... býst við því að ég sé mjög dýr í rekstri, en se la vi, hann er sáttur.
Miki asskoti er ég glöð, finn fyrir innri ró, loksins.
Tútelú!
10. apr. 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
ógisslega kúl plan hjá þér. þú verður massa ráðgjafi!
já skvís, ég held það bara! Annars er þitt plan líka kúl, þarf að fara koma og fá mér í gogginn.
Skrifa ummæli