9. feb. 2007

Nenni þessu varla...

Ég er ekki alveg viss um að ég nenni þessari leikfimi. Mér er illt í bakinu, enn með magavöðvana spennta og orkulaus. Ég hélt að maður ætti að verða fullur af orku eftir þetta púl! Ekki að gerast hjá mér. Svo er vigtin farin að segja 60kg sem er ok þar sem að ég mátaði föt í gær í stærð 8 og komst í en fann svo 10 og er mjög ánægð með það. Ég er glöð að vera farin úr millistærðinni 11 sem er ekki til. Nei, ég ætla ekki í neitt framhaldspúl, ég skúra á hverju kvöldi risa leikskóla og stunda svo skemmtilega heimaleikfimi svo ég get bara lagt heilsuræktarkostnaðinn inná nýja sparireikningin minn!

Líður rosa vel, ætla í sund á eftir og spóka mig í nýja tankininu mínu ásamt börnum og gæja. Fáum okkur svo pizzu og svo er það bakstur... vona að það komi einhver í kaffi á morgun.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

æi.... sorry ég kíkti ekki til þín í dag.. en það vera bara allt í einu svo mikið að gera.. en takk fyrir æðislegt boð og við sjáumst á mánudaginn ;o)kv hilda