30. jan. 2007

Próf og áhugasamur lesandi!

Það var próf á netinu í gær í öryggi netsins. Veit ekki alveg hversvegna þetta er hluti í náminu en það eru sjálfsagt einhverjir nemar sem kunna og vita lítið um netið og tölvur sem er framtíðin.

En inná milli lærdóms í gær kíkti ég á þetta apparat sem ég setti inná síðuna mína, sitemeter. Gæinn sagði mér að þarna gæti ég séð hvaðan fólk kæmi til að kíkja á mitt blogg. Ég skoðaði það og sé að einhver eða einhverjir hjá steypustöðinni eða Mest hf. eru mikið að lesa Nikitu. Ég þekki engan þar og auglýsi því hér með eftir þessum áhugasama lesanda. Giska á að þetta sé nú einhver úr KHÍ en samt ekki viss. Er forvitin.

Já og auðvitað fékk ég 10 í þessu ágæta prófi :)

6 ummæli:

Unknown sagði...

Það er auðvitað þér líkt að þurfa að vita um alla sem að lesa bloggið þitt hihi...
Hvers vegna má fólk ekki bara spæja um þig í friði?
kannski er þetta leyndur aðdáandi sem að þú ert nú búin að fæla frá eða bara saklaus steypihræri kona sem að dreymir um að lifa lífinu eins og þú:D

Nikita sagði...

Hey, ég er forvitin :)

Nafnlaus sagði...

hæ hæ, ég er maría, þessi sem var alltaf úti að reykja með þér í khí. en ég vinn ekki í steypustöð og var bara að enda við að fatta síðuna þína :)

Nafnlaus sagði...

hæ hæ.. vonandi ertu að batna sakna þín nokkrum sinnum á dag sko eða kl 9.15 kl 12 kl 14 og kl 15.30 og einhvern líka eitthvað á milli :o) í vinnunni hehehe... láttu þér batna..
kv Hilda plast...

Becka sagði...

Ég fæ aldrei nóg af bullinu í þér, þannig að ég les þetta blog þitt daglega. Jafnvel oftar ef mér leiðist rosalega. (shit, Ævar var að labba fram hjá, verð að þykjast vera að vinna!!!) Begga busy

Nikita sagði...

voðaleg komment eru þetta. Mætti halda að ég reykti... iss nei, ég er bara svona einsog Begga, þykist reykja og þykjist vinna!