15. jan. 2007

Ég þarf að pissa...

og þá fer ég að pissa EF engin er inni á salerninu auðvitað því einsog sumir vita þá er ég með feimna blöðru eða klósettfælni. Og nú er ég byrjuð í einhverri rækt og því duglegri að drekka meira vatn sem kallar á fleiri klósettferðir sem ég er ekkert ánægð með. Allavega varð ég bara að fá að tjá mig hér og láta vita að ég er með bestu og sterkustu grindarbotnsvöðva, ábyggilega í heimi. Ég fer á klóið þegar ég hef fullvissað mig um það að engin sé að skvetta úr henni, sest niður og byrja að pissa en úps, þá kemur einhver inn og hvað geri ég, nei hvað gerir hún? Hættir. Stoppar. Ekkert gerist. Og ég var í spreng.

Djöfull og helv... get ekki setið kyrr, ætla prófa aftur.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Muha ha ha ha... hún hættir við... thí hí hí... er það er læst þá er allt í lagi..

Sívar sagði...

Ég gæti fjallað ítarlega um grindarbotnsvöðva þína en ætla ekki að gera það.

En já.. þú hættir.. hvað er hægt að segja við því?

Nafnlaus sagði...

:Þ hihhi...

Nafnlaus sagði...

hehe... þú ert svo fyndin. En ég ætla að benda þér á annað klósett ef þú hefur áhuga á því. Það er auðvita þetta inn í matsalnum. Getur enginn labbað inn á þig þar, og eftir kl 2 þá ættu mjög fáir að vera á ferðinni þar.