30. des. 2008

var búin að gleyma...

hvað það er notalegt að fara í sund. Skellti mér áðan með dótturina og frænkuna. Ohh, þetta var svo gott að ég held bara að ég sofni í kvöld :) ákvað líka að synda helling til að gleyma og svo var ég dregin í rennibrautirnar. Rosa stuð.

Svo hitti ég gamlan skólabróður í pottinum sem vinnur í Háskólanum og við fórum að ræða um nám og fleira. Hann sagði mér frá einu áhugaverðu sem ég ætla mér að skoða, er nefnilega dáldið óákveðin hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór.

jæja, ætla að fara elda fyrir annaðkvöldið! Býð spennt eftir nýju ári sem verður mitt ár.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gleðilegt nýja árið :)

Mér líst ofsalega vel á það að þú verður í aðalhlutverki, má ég vera á fremsta bekk?

knús Eva