3. júl. 2008

Leti

Frekar þreytt, ekkert nýtt. Hlakka rosa til á sunnudag en þá koma englarnir mínir og ég ætla að vera í fríi á mánudag og knúsa þau á ylströndinni okkar!
Hlakka líka til annað kvöld en þá ætlar Inga Jóna pæja að koma til mín. Við ætlum að láta verða af því að borða saman og kannski finna eitthvað á okkur. Kynntumst í Odda 2003 og vorum ALLTAF saman þá. En svo hætti ég og okkur tókst að gleyma hvor annarri, en bara í nokkur ár :)

Fékk mann í heimsókn frá www.spara.is og þvílíkur léttir það var. Algjör snillingur hann Sigvaldi. Gaf mér góð ráð og eitt dáldið flókið og stórt sem ég er mikið að spá og speglúera í.

En... ég þarf að selja Damien Rice miðana! Viltu kaupa þá? Hvað bíður þú?

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ertu búin að losa þig við miðana á Damian Rice - ég er búin að koma og dingla nokkrum sinnum - kv, jarðbúinn fyrir neðan