30. maí 2008

Hún er 10 ára í dag...




Litla sæta stelpan mín á afmæli í dag.

23. maí 2008

Vikan

Skrítin vikan sem er að líða. Skemmtileg og líka sorgleg.

* Plútó dó
* Missti af magadansi
* Kærastinn átti afmæli og farið í veislu í Keflavík :)
* Dóttirin fer í sturtu á morgnana (hefur tekið klst. að fá hana á fætur)
* Magadans klukkan fimm í stað sjö (Eurovision)
* Ótrúlegt en satt, Ísland heldur áfram. Leiðinda lag en þau voru glæsileg
* Kærastinn kemur í dag :)
* Vatnsblöðruafmælispartý á morgun
* Eurovision á morgun

Jæja, ætla að finna mér eitthvað að gera hérna í vinnunni.

Áfram Ísland!

15. maí 2008

Andlit fyrirtækisins

það er ég, af því ég er svo sæt. En í dag lít ég kjánalega út, var hjá tannsa og mun ekki brosa fyrir en seinnipartinn. Búið að hlæja of mikið af mér.

9. maí 2008

Trampólín

Börnin eru búin að suða um að fara uppí bústað og setja trampólínið saman. Ég hlakka svo til að fara, liggja í leti og láta ma og pa þjóna mér og börnum. Samt ekkert skemmtilegt veður en það er ekkert verra að hoppa á trampólíni í pollagalla eða á bikiníinu.

Góða helgi.