25. apr. 2008

Cats & dogs

Mér er ekki vel við hunda. Vond lykt af þeim og svo hoppa þeir uppá mann og hnusa. Ég er þessi kisutýpa. En núna sit ég og horfi út um útidyrnar í vinnunni og þar situr hundur og hann er svo mikið krútt, bíður eftir húsbónda sínum í rólegheitunum og geltir ekkert. Honum hefur tekist að senda mér augnaráð um að koma og klappa sér. Ég ætla samt ekkert að gera það.


Góða helgi.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvað meinaru stelpa???

Er þetta eitthvað skot á mig og mína??

núna er ég bara fúl sko... ;o(

Kv. Freyja og Eva...

Nikita sagði...

Hurru sæta, ég held að ég hafi nú ekkert verið að fela það neitt fyrir þér hversu vel mér líst á hunda almennt... held að Freyja litla hafi ekki oft fengið klapp frá mér en hún er samt voða sæt, einsog þú.

Nafnlaus sagði...

jæja ok... ég hef reyndar ekki tekið eftir því hvort þú klappir henni eða ekki!!

En takk fyrir... við erum ofsalega sætar það er alveg rétt hjá þe´r ;)
kv. skvízurnar