14. júl. 2009

lá í leti áðan og kveikt var á sjónvarpinu. Ekkert í því einsog vanalega svo According to Jim fékk mitt auga. Í þessum þætti hljómaði lag sem ég hef aldrei heyrt áður og ég er með það á heilanum núna. Mjög fallegt.

13. júl. 2009

nú er illt efni ekkert tyggja má...

ég mun aldrei fá mér möndlu aftur. maður á að vera farin að vita þetta. er að drepast í þessari tönn og hlakka mjög til að mæta til tannlæknis á morgun. hlakka samt ekkert til að borga honum... asskoti dýr mandla...djöf...

4. júl. 2009

Þetta er nú meira sumarið. Börnin voru hjá okkur allan júní og þau voru ekkert neitt rosa hrifin af því að mamma væri alltaf í vinnunni, hvað þá að allir þyrftu að fara sofa klukkan tíu því mamma þarf að vakna klukkan sex. Nú eru þau farin til pabba síns sem er í fríi líka. Reyndar var nú sambýlingurinn komin í frí þarna rétt í lokin svo þau héngu nú ekki alein heima. Get samt alveg sagt ykkur það að mamman er orðin dáldið þreytt á þessari vinnu líka. Nú er ég að vinna í tíu daga í röð, ekki frídagur fyrir en á fimmtudag. Þá ætla ég að gera ekki neitt!

Ég er að vandræðast með hárið á mér, ekkert nýtt svo sem en ég hef tekið ákvörðun, ekki eina heldur tvær. Ég ætla að þrauka þetta, vera með mjög sítt hár og aldrei að vita nema það verði viðráðanlegt því síðara sem það er. Nú ef ekki þá ætla ég að byrja uppá nýtt þegar ég verð 35 ára. Ég hef sterkan grun um það að það fari mér best að vera mjög stuttklippt... já og hin er að ég ætla að hætta að sápa það, bara skola og ég er ekki frá því að það sé viðráðanlegra.

Já, og svo er komin nýr sambýlingur, hann Pablo og sá er sko gullmoli :)