Fyrir einhverjum 19 árum síðan fór ég í bíó með Sólveigu. Austurbæjarbíó sem var okkar hverfisbíó, alltaf svo gaman hjá okkur bæði á leiðinni í bíóið og úr því. Ef við vorum orðnar og seinar þá gerðum við dyrabjölluat til að fá okkur til að hlaupa.... en já, við fórum s.s. í eitt skiptið á Die Hard og vááá við gátum varla gengið heim. Hjartað sló hratt alla leiðina heim. Í gærkvöld endurtók þetta sig nema núna fór ég með Jens og á Live Free or Die Hard. Hólí mólí... geðveikt gaman. Allur pakkinn í henni, mæli með henni.
Svo vona ég að Raggi fyrirgefi mér fyrir að hafa ekki heilsað sér þarna í bíóinu en ég bara var ekki viss hvort þetta væri hann því þessi sem ég sá var búin að raka allt hárið af sér og mér fannst það ekki Ragga líkt. Hélt líka bara að hann myndi heilsa mér því ég hef ekkert breyst síðan ég sá hann síðast. Nú svo getur vel verið að þetta hafi bara ekki rass verið Raggi og ef ekki þá var þetta tvífari hans.
En ég er orðin spennt fyrir morgundeginum að hitta krakkana og fara í bústað og vera í vikuleti með þeim sem mér líður best með!
Hafið það gott á meðan ágætu lesendur.
28. jún. 2007
25. jún. 2007
Girl You Know It´s true!
Ég er búin að hlæja mig máttlausa yfir þessu, og Begga á ekki orð, trúir því ekki að þetta hafi einhvern tímann verið í uppáhaldi.
Góða skemmtun!
Góða skemmtun!
22. jún. 2007
Fagmennska kennara!
Er búin að vera lesa um fagmennsku kennara, fagvitund og fleira. Mjög áhugavert. Svo var þetta uppistand sett inná umræðuvefinn. Áhugavert! Líka þar sem að ég fór í atvinnuviðtal í dag og í fyrsta skiptið sem ég var bara nokkuð stressuð, óviss því starfið er, að mínu mati, mjög ábyrgðafullt. Leið samt mjög vel á eftir og ó mæ god ef ég fæ þetta starf breytist hellingur og þá sérstaklega fjárhagurinn.
Og svo er ég líka orðin svo spennt fyrir næstu helgi, þá verða dúllurnar mínar komnar til mín og við ætlum í bústað rétt fyrir utan Akureyri. Ætlum að gera helling en reyndar samkvæmt samtalinu mínu í morgun við dóttur mína þá ætlum við að kyssast og knúsast svo mikið að það er spurning hvort við náum að fara eitthvert.

19. jún. 2007
Góður nemandi, duglegur nemandi.
Það er annar dagur í staðlotu. Og ég blogga bara. Ég er ekki að nenna þessu. Gott veður úti og leiðindakall að tala um hugmyndasmiðju. Mig langar bara út, fara í sólbað, helst inní Hvalfjörð. Það er auðvitað ekki í boði þar sem að ég þarf að læra og eyða þrem tímum á leikskóla.
Og já, ég fékk smá hint um að ég gleymdi að nefna eitt brúðkaupið sem var líka í fyrra en ég er bara enn að jafna mig á því að hafa ekki verið boðið í það og var því ekkert að minnast á það... nei grín, ég bara gleymdi að minnast á mína frábæru, yndislegu Sólveigu (vélmenni) sem gekk að eiga hana frábæru Snædísi.
Þarf að gera ritgerð, neyðist til að klippa þessar fallegu neglur mínar. Er ekki að höndla þetta lyklaborð með þeim.

17. jún. 2007
Brúðkaup og Pretty in Pink
Ég er búin að fara í tvö brúðkaup á þessu ári, mun missa af einu en Ingunn ætlar að eiga hann Ulle í Danmörku. Í fyrra gifti Edda sig og líka hún Olga. Nú má segja að við séum bara þrjár ógiftar og kannski að Nína og Keith verði næst þar sem að sokkabandið hennar Sillu skaust í hann. En það er alltaf svo gaman í brúðkaupum. Sjá vinkonu sína síðan úr barnaskóla gifta sig. Og svo er alltaf gaman þegar við hittumst allar og mynd tekin af okkur. Þessi var tekin í gær :)

En ég má til með segja frá föstudagskvöldinu. Ég fór uppí bústað til að hitta hana mömmu sætu sem átti afmæli og borðaði með þeim. Þegar ég kom heim langaði mig að horfa á eitthvað en fann ekki neitt. Svo mundi ég eftir hinni skemmtilegu mynd sem ég er búin að eiga í langan tíma, horfði á hana einu sinni á dag fyrir 20 árum síðan en það er hin frábæra unglingamynd Pretty in pink Ég fékk smá gæsahúð en hún er svo sæt og krúttleg þessi mynd. Og svei mér þá ef að kossinn þeirra í lok myndarinnar sé ekki bara sá besti, slær jafnvel kossin úr The Note Book. Sumar myndir eru best geymdar í minningunni en þessi flokkast ekki undir það hjá mér. Eina sem truflaði mig þegar ég var að horfa á hana var að ég vonaðist til að Jensinn kæmi ekki heim á meðan. Þá hefði ég þurft slökkva á tækinu. Hún er nebbilega ekki við hæfi stráka og alls ekki þá sem sáu hana ekki á sínum tíma.
En nú ætla ég að fara læra... eða taka til.

12. jún. 2007
Upp og niður...og svo aftur upp!
Það er svo merkilegt hvað allt getur verið svart og ómögulegt einn daginn og svo rífur maður sig upp og eins fljótt og allt varð svart er allt orðið hvítt og fallegt. En maður þarf víst að eiga góða að til að geta rifið mann upp og ég er svo asskoti heppin að eiga það gott fólk í kringum mig.
En helgin var mjög skemmtileg, fallegt brúðkaup og dúndrandi partý á eftir. Ég þurfti samt að taka ákvörðun eftir þetta snildarpartý og ég er mjög sátt við hana. Mín yndislega systir kom með mér að skúra í dag og átti ekki orð, heimtar að borga mér fyrir að hætta þessu! Ég bauðst til að skúra heima hjá henni í staðinn...
En núna er minn heitt elskaði komin heim og ég ætla að knúsa hann.
Adios!

7. jún. 2007
Nóg að gera...
Síðasta föstudag fór ég uppí bústað með yndislegu börnin mín og bauð vinum þeirra með. Það var svo gaman, þau skemmtu sér svo vel, ég leyfði þeim að gera það sem þau vildu, t.d. að leika sér með garðslönguna á sundfötunum þótt það hafi ekki verið mikið um sólskín. En það var heitt og þau líka á fullu. Ég ætlaði auðvitað að læra, held ég hafi lesið tvo kafla í AGN bókinni en ég var bara að hugsa, hugsa svo asskoti mikið. Ég nefnilega komst að því rétt áður en ég fór að ég á ekki nema 4 daga eftir af sumarfríinu mínu. Varð svo alltí einu geðveikt bjartsýn. Tók ákvörðun um að skúra tvo leikskóla í júní... byrjaði á því svo á mánudaginn og hmmm... er búin að biðja um að skipta aftur. Ekki gaman að mæta í vinnu klukkan átta á morgnana og koma svo heim til sín klukkan ellefu á kvöldin og já, þá á ég eftir að læra. Gerði nýtt plan. Líður betur. En ég er búin að fá tvær lokaeinkunnir, 8,5 og 8,5 :).
Og nú eru dúllurnar hjá pabba sínum og verða þar til lok júní. Þá ætlum við að fara í bústað með potti rétt fyrir utan Akureyri.
Annars eru tvö brúðkaup á næstunni, Bjössi og Linda á laugardaginn og svo Silla og Skúli þar næsta. Best að fara máta kjólana!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)